Hraðlestrarlykillinn - vertu með á nótunum - lestu meira - lærðu meira - náðu forskoti
1. Árg. 3. Tbl.  - Ágúst 2010
www.Hraðlestrarskólinn.is
Daginn Subscriber,

Jón Vigfús - Skólastjóri HraðlestrarskólansÉg vildi byrja á að þakka þér fyrir að sýna fréttabréfi Hraðlestrarskólans áhuga og kalla eftir ábendingum um efnistök í næstu tölublöðum.  Ef þú vilt að ég fjalli um eitthvað sérstakt vil ég að þú skjótir til mín ábendingu um það efni á netfangið frettabref@h.is

Nú þegar annasamt haust er framundan get ég ekki beðið eftir að sjá undrunar- og gleðisvip nemenda á næstu vikum og mánuðum.  Andlit nemandans sem að uppgötvar að lestur getur verið auðveldur, skemmtilegur og ánægjulegur.  Eins og ég nefni oft við hópa; Ef við gætum unnið eitthvað verk 4 sinnum hraðar - hvað stoppar okkur.  Ef við gætum klárað vinnudaginn á 2 tímum í stað 8 tímum??  Hvað ef við gætum þrifið húsið á 15 mínútum í stað klukkutíma??  Hvað ef við gætum klárað heimavinnuna á klukkutíma í stað fjögurra tíma??  ~ Hvað þá? ~ Hvað myndir þú vilja gera við frítímann þinn? ~ Skjóttu til mín svari við þessari spurningu á facebook síðunni - facebook.com/hradlestrarskolinn - eða í tölvupósti á frettabref@h.is og 5 heppnir fá bók að launum.

Í þessu tölublaði skoða ég 11 einfaldar leiðir á að takast á við handbækur og sjálfshjálpar-bækur - hvaða punkta þurfum við að hafa á hreinu áður en við lesum efnið og á meðan að við lesum efnið.  Hafa einfaldlega í huga að við lesum ekki allt efni eins.  Markmið lesturs á að stjórna för.
Ég fer líka í gegnum 90 daga prógrammið af meiri dýpt enda margir kallað eftir upplýsingum um það námsferli og hvernig það virkar.  Nú er bara mánuður til stefnu og allar línur að skýrast.  Enn eru 2 sæti laus í 20 manna kynningartilboðið og því um að gera að festa sér sæti sem fyrst ef þú hefur áhuga á að toppa námsárangurinn á næstu 90 dögum.
Lykillinn þinn að meiri árangri...
11 einföld ráð til að takast á við handbækur eða sjálfshjálpar-bækur.
Það sem að einkennir helst lestur á handbókum og sjálfshjálparbókum – eða svonefndum “Non-fiction” bókum almennt – er það að lestur þeirra er jafnan bundinn ákveðinni neyð eða nauðsyn.  Við erum að leita svara.  Þess vegna lesum við slíkt efni ekki eins og skáldsögu - þar sem við byrjum á fyrstu síðu og endum á þeirri síðustu.  Það má frekar líkja því við að lesa námsbók en munurinn er þó jafnvel töluverður þar líka.  Lestur námsbóka er sjaldan bundinn neyð – nema þá þeirri einföldu neyð að ná prófum.
Við lesum handbækur til þess að finna svar við vandamáli sem er að trufla okkur eða Láttu ekki streituna ná yfirhöndinni - leystu vandamálin straxgera okkur erfitt fyrir.  Þetta gæti verið vandamál í vinnunni, heima fyrir, ástundun vegna áhugamáls eða tómstunda – eða í raun hvað sem er.  Það er hægt að nálgast gríðarlegt magn bóka í dag sem að fjalla um í raun - hvaðeina sem okkur hugnast – hvað sem okkur vantar.
Í stað þess að við förum og reynum að finna upp hjólið á ný – þá leitum við svara hjá fólki sem hefur leyst þetta sama vandamál hjá sér.  Sjáum hvað þau hafa gert og reynum að tileinka okkur lausn þeirra – okkur til hagsbóta.  Lærum af reynslu annarra.
Þess vegna er mjög gott að hafa þessi 11 einföldu skref í huga þegar þú ert að leita svara við vandamálinu sem er að trufla þig.

1.Hafðu skýra mynd af því hvaða vandamál þú þarft að leysa
2.Hafðu skýra mynd af því hvernig það myndi hjálpa þér að finna svarið
3.Finndu bókina sem þú telur hafa svarið
4.Skoðaðu efnisyfirlit
5.Finndu kaflann eða kaflana sem fjalla um efnið
6.Forlestu fyrstu og síðustu blaðsíður þess kafla
7.Nýttu 5 mínútur til að skanna efni kaflans
8.Merktu með blýanti við atriði sem þú telur hjálpa þér
9.Lestu kaflann í gegn með góðum skilningi – með markmiðið í huga
10.Leitaðu svara við vandamálinu þínu
11.Notaðu upplýsingarnar til að leysa vandamálið strax


Kíktu á nánari útlistun á hverju skrefi á h.is/handbaekur

Að endingu
Þessi listi er auðvitað ekki tæmandi fyrir það ferli sem við þurfum að nota en nýtist sem einföld skref í átt að nýta handbækur til að leysa úr einföldum vandamálum í Njóttu dagsins - öll vandamál leyst af þekkingu og kunnáttuvinnu, námi eða einkalífi.  Til hvers að finna upp hjólið?  Lausnir við vandamálum okkur má finna í aragrúa bóka sem gefnar hafa verið út.  Það er okkar að finna þessar lausnir – okkar að lesa þessar bækur og gera ferðina okkar aðeins ánægjulegri fyrir vikið.
Við þurfum einfaldlega að læra að takast á við vandamálin okkar eins og þegar við tökumst á við stórt púsluspil.  Þegar púslin eru öll í einni hrúgu – er erfitt að sjá lausnina.  Með því að skipta púslunum upp - erum við að einangra vandamálið – eigum þannig auðveldara með að sjá hvar lausnin liggur og svo tökum við eitt skref í einu – eitt púsl í einu – þar til að lausnin finnst.  Við höfum leyst vandamálið okkar.
Það sem ég vil helst benda þér á í þessari grein er að við lesum ekki allt efni með sama hætti.  Byrja á fyrstu síðu og svo blaðsíðu fyrir blaðsíðu.  Það eru til mun markvissari leiðir og það er okkar að kunna að takast á við mismunandi leiðir – mismunandi efni – þekkja hvenær við notum þær – og njótum þannig betur að lesa bækur.  Með markmið lesturs að leiðarljósi.

Kíktu á lengri útgáfu af greininni á:  www.h.is/handbaekur
Mér fallast hendur yfir öllu sem ég þarf að lesa...
Einn af stóru þáttunum sem nemendur þurfa að takast á við í kröfuhörðu námi er gríðarlegur bókastafli sem þeim er ætlað að lesa og kynna sér á meðan að á námi stendur.  Fælir þetta oft marga frá námi enda telja þeir að þeir muni aldrei standa undir því. Vandræðin eru þó í öllum tilfellum heimatilbúin enda hafa allir tök á að komast yfir allt það lesefni sem þeim er sett fyrir - með mjög auðveldum hætti.

Guðmunda Ólafsdóttir er 25 ára sálfræðinemi og var ein þeirra sem nýtti sér tækifærið, skellti sér á námskeið í sumar þar sem hún hafði alltaf lent í erfiðleikum með að komast yfir það námsefni sem henni var sett fyrir.  Henni hafði bókstaflega fallist hendur yfir öllu bókaflóðinu í Sálfræðinni og er það ekki að hjálpa í náminu. 

Þetta er þó ekki óalgengt hjá námsfólki enda mikilvægt að hafa tök á að kynna okkur lesefni annarinnar.  Það er þó oft þannig að kröfur okkar um það að lesa allann texta með 100% skilningi.  Lesa orð fyrir orð og skilja öll orð sem lesin eru - er að gera okkur gríðarlega erfitt fyrir.

Gera það að verkum að lesefnið verður leiðinlegt - við einfaldlega sofnum yfir því.  Lestur námsbóka á að vera skemmtilegur.  Hann á að reyna á okkur og um leið og við breytum fáeinum atriðum hjá okkur.  Hvernig við tökumst á við þungar námsbækur gerum við okkur kleift að vinna mikið hraðar og mikið markvissar úr textanum.

Eitt einfalt atriði er að leita svara þegar þú lest textann í gegn.  Hvað er það sem höfundur er að leggja áherslu á - hvað vill hann að þú lærir?  Hvað er það sem kennari leggur áherslu á?  Ef þú leitar svara við þessum atriðum í textanum - kynnir þér efnið - finnur svör við lykilspurningum - þá verður hugarfar þitt við lesturinn allt annað.

Þú getur spurt nánast hvaða nemanda Hraðlestrarskólans sem er, en eftir námskeið er hann auðveldlega að ná því að gera allt námsefnið miklu áhugaverðara og meira spennandi - því hann tekst á við allt kennsluefni - eins og að þar væri á ferð hans uppáhalds kennsluefni. Áhugi er smitandi og um leið og þú ferð í gegnum textann með ákveðið markmið að leiðarljósi - verður eftirleikurinn mun auðveldari.

Mjög algengt er að margir skrái það hjá sér í umsögnum um námskeiðið eða tali um það við mig á námskeiðunum að þeir hafi bara haldið að þau læsu svona - að þau gætu ekki sinnt þessu öðruvísi.  Við getum öll breytt venjum og bætt okkur með æfingu.  Það eina sem þú þarft eru réttu tækin og tólin til að hefja vinnuna.

Enda nefnir Guðmunda það einmitt í sinni umsögn að hún sé mikið bjartsýnni á að komast yfir allt lesefni annarinnar eftir að hafa þrefaldað lestrarhraðann hjá sér.  Ekki slakur árangur það.
Framkvæmd og eftirfylgni í 90 daga ásamt vikulegum veffundum um nám, venjur, tímastjórnun o.fl.

Ferlið virkar í gegnum samtakamátt margra, markvissri kunnáttu á því hvernig við náum árangri, tæklum markmið og breytum venjum okkar.  Ferlinu stjórnar Jón Vigfús Bjarnason, Skólastjóri Hraðlestrarskólans og þekkir hann það í gegnum svipuð kerfi í að ná meiri árangri í viðskiptum og þekkir því mjög vel af eigin reynslu hve miklum árangri er hægt að ná í gegnum svona árangurskerfi.

Þú ert með þinn eigin námsþjálfara - en fyrir aðeins brot af raunverulegum kostnaði

Við þekkjum öll hve mikilvægt það er að hafa einkaþjálfara í líkamsrækt, einkakennara í einstaka greinum, aðila sem leiðir okkur í gegnum grunnatriði og heldur okkur við efnið, fylgist með okkur.  Í 90 daga námsferlinu ertu að fá eigin námsþjálfara - en greiðir þó eingöngu lítið brot af því sem alvöru námsþjálfari kostar þig.  Þinn námsþjálfari heldur þér við efnið - minnir þig á markmiðin - hvetur þig áfram - ýtir undir meiri einbeitingu og árangur í náminu þínu. Hvernig er þetta hægt...?
Með samtakamætti nemenda og skýrum en einföldum verkferlum færðu lykilinn að meiri árangri í náminu - um leið og þú færð tök á að eiga líf utan náms - sinna fjölskyldu, vinum, íþróttum, áhugamálum - eða bara að slaka á og hlaða batteríin.

Dagskrá veffunda

Veffundir verða haldnir vikulega á mánudagskvöldum kl. 21-22 - gert er ráð fyrir um 45-50 mín. - og verða þeir teknir upp og aðgengilegir á neti í framhaldi (um 24 tímar).  Þátttakendum gefst færi á að koma með fyrirspurnir á veffundinum eða með því að senda tölvupóst fyrir fundinn en einnig verða ákveðnir punktar skoðaðir sérstaklega.
  • 13. September - 21.00-22.00 - Kynning á 90 daga námsferlinu (Námsfélaginn + markmiðasetning)
  • 20. September - 21.00-22.00 - 21 dagur til að breyta venjum (Námsvenjur + tímastjórnun)
  • 27. September - 21.00-22.00 - Vinna í kennslustund (Glósur, spurningar, virkni, undirbúningur)
  • 4. Október - 21.00-22.00 - Lestur námsbóka (Forlestur, glósur, virkni, spurningar, undirbúningur)
  • 11. Október - 21.00-22.00 - Frjálst val - Hvað viltu ræða - jovvi@h.is
  • 18. Október - 21.00-22.00 - Hvernig vinnum við í hóp?
  • 25. Október - 21.00-22.00 - Hvernig klárum við stór verkefni? (Ritgerðir, skyndipróf, verkefni)
  • 1. Nóvember - 21.00-22.00 - Frjálst val - Hvað viltu ræða - jovvi@h.is
  • 8. Nóvember - 21.00-22.00 - Halda yfirsýn í námi
  • 15. Nóvember - 21.00-22.00 - Hvernig högum við prófundirbúningi?
  • 22. Nóvember - 21.00-22.00 - Frjálst val - Hvað viltu ræða - jovvi@h.is
  • 29. Nóvember - 21.00-22.00 - Hvernig tökum við próf?
  • 6. Desember - 21.00-22.00 - Lokafyrirspurnir
Við leitum nú að metnaðargjörnum nemendum sem vilja taka þátt í fyrsta 90 daga námsferlinu - Nemendur sem vilja toppa námsárangur sinn á 90 dögum - frá og með 10. september.

Kynntu þér málið á www.h.is/90dagar
"Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt."
- Einar Benediktsson, skáld (1864-1940)
Hafðu í huga að dagurinn í dag er eins frábær og þú vilt að hann sé - það er þitt að ákveða.  Njóttu dagsins Subscriber - alla daga.
LOL
Með kærri kveðju,


Jón Vigfús Bjarnason,
Skólastjóri Hraðlestrarskólans

Netfang: jovvi@h.is
Sími: 773-0100
Skype: jonvigfus
Facebook: www.facebook.com/jonvigfus
------
"Lesturinn er huganum það sem hreyfingin er líkamanum" - Pétur Gunnarsson, rithöfundur
---------------
Í ÞESSU TÖLUBLAÐI...
11 einföld ráð til að takast á við handbækur
Mér fallast hendur yfir öllu lesefninu
Framkvæmd og eftirfylgni í 90 daga - 90 dagar sem breyta lífi þínu

BEINT INN Á...
~ SKRÁNING ~
Næstu námskeið
90 Dagar til að toppa námsárangurinn
Hraðlestrarkrakkar
Framhaldsnámskeið
Hraðlestrarkrakkar
9-12 ára
Fyrir krakka sem vilja lesa meira

"LOKSINS" segja sum ykkar - allavega velflest ykkar sem hafið setið námskeiðið og eigið börn eða systkini á þessum aldri enda hef ég í fjölmörg ár þurft að segja NEI við ykkur.  Lágmarksaldur hjá okkur hefur verið 13 ár - og þá yfirleitt horft til fermingaraldurs - en málið var aldrei það að hraðlestrartæknin sjálf væri svo flókin - hún er það ekki.
Fyrstu almennu námskeiðin hefjast í byrjun september og erum við að leita að fyrstu 10 börnunum til að renna í gegnum námskeiðið og vil því kynna þetta fyrst hér.
    Kynntu þér málið á www.h.is/krakkar
Eru markmiðin skýr fyrir haustið?
   Ein allra besta leið til að ná árangri í námi (eða lífinu almennt) er að vita að hverju þú stefnir.
Til hvers ertu að þessu öllu? - hvað er það sem keyrir þig í gegnum daginn? - EF svarið þitt er "'Ég veit það ekki :-( "  - Ekki hafa áhyggjur.
Um 90% þeirra sem þú umgengst hafa heldur ekki hugmynd um svarið - þannig er það.  Og það eina sem þú þarft að gera til að ná að fóta þig á meðal topp 10 nemenda (starfsmanna) - er að hefja leit að svarinu.  NÚNA...því það er aldrei of seint en besti tíminn til þess - sérstaklega ef þú ert í námi er núna.
Vertu með það á hreinu áður en önnin hefst - hvaða árangri þú ætlar að ná - meðaleinkunn - einkunn í einstaka greinum o.s.frv.
Skiptir engu hver fyrri árangur þinn var - settu niður þann árangur sem þú vilt ná og skrifaðu hann á blað.
Ertu í íþróttum eða ertu að sinna einhverju öðru með skóla.  Settu líka niður markmið þitt hvað það varðar.  Íþróttir - hvaða árangri þú ætlar að ná á næstu 3 mánuðum og 6 mánuðum.   Gerðu síðan það sama við allt það sem þú setur einhvern tíma í dags daglega.
Mjög mikilvægt skref er að taka þessi markmið og setja þau á blað - kvittaðu undir og settu þar eftirfarandi texta.

"Ég, [nafnið þitt], lofa mér að gera allt sem í mínu valdi stendur til að sinna þessum markmiðum og gefa þeim eins mikinn tíma og ég mögulega get.  Ég mun passa upp á að tími sem fer í að sinna þeim sé alfarið nýttur til að sinna þeim en ekki öðru.  Ég mun hugsa um þetta loforð líkt og að ég hafi lofað [ aðili sem þú lítur mikið upp til ] að vinna þetta að heilum hug - vitandi það að ef ég geri það - þá færist ég miklu nær framtíðarsýn minni"
NÝTT – Helgarnámskeið
NÝTT!! - HELGARNÁMSKEIÐ + 3 VIKNA ÆFINGARKERFI Í FJARNÁMI

Helgarnámskeið Hraðlestrarskólans er nýjung ætluð þeim er þurfa að
fá grunnþekkingu í hraðlestrartækninni strax. Kennari leiðir
þátttakendur í gegnum kennsluefnið á einni helgi - 4 klukkustundir
hvorn dag. Eftir helgarnámskeiðið tekur við 3 vikna æfingarkerfi
þar sem nemandi beitir nýrri lestrartækni daglega og festir hana
í sessi til frambúðar.

Næstu helgarnámskeið eru:
- Húsavík - 14. ágúst
- Akureyri - 21. ágúst
- Suðurnes - 28. ágúst
- Reykjavík - 4. september

Skráning á www.h.is
~ Góð bók á að lesa oft ~
Ein af þeim ranghugmyndum sem ég heyri oft á námskeiðum er sú firra að kennslubók eigir þú bara að þurfa lesa einu sinni.
   Veltu fyrir þér þessari einföldu staðreynd.  Hvað liggja mörg ár af þekkingu og kunnáttu höfundar á bakvið textann sem þú lest í kennslubókinni?
   Er eðlilegt að þú ætlir þér að læra og kunna það efni bara með því að lesa bókina einu sinni í gegn.  Auðvitað ekki.

   "Sú bók, sem er ekki þess verð að vera lesin tvisvar, er ekki heldur þess verð að lesast einu sinni." - K.J.Weber
  
   Vertu með markmið lesturs á hreinu þegar þú lest bókina.  Hvaða spurningum viltu geta svarað eftir að lesa bókina í gegn?  Hvaða lykilorð og lykilhugtök viltu hafa á hreinu?  Forlestu efnið og í stað þess að leggja áherslu á að lesa alla bókina með 100% skilningi - leggðu áherslu á að vita hvaða atriði skipta mestu máli - og leggðu allt þitt í að þekkja þau atriði upp á 10.

   Góðar bækur um námstækni:
 - Becoming a Master Student
 - The Buzan Study Skills Handbook

   Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur spurningar.
HAFÐU SAMBAND: frettabref@h.is
Við ábyrgjumst árangurinn















Kynntu þér ábyrgðina okkar á hraðlestrarnámskeiðunum. 
Við leggjum allt okkar í að þér gangi vel - ekki bara í dag - ekki bara á morgun - ekki bara á meðan að á námskeiði stendur - heldur alla ævi - því þú átt það skilið.

KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ HÉR
HAFÐU SAMBAND
Hraðlestrarskólinn
SÍMI: 773 - 0100
NETFANG: jovvi@h.is
SKYPE: jonvigfus
FACEBOOK:
www.facebook.com/hradlestrarskolinn
~ VERTU VINUR

 ~ Hrökkva eða Stökkva á Facebook ~
Vertu vinur á Facebook því af og til ef fólk dettur út á síðustu stundu mun ég skjóta ~ Hrökkva eða Stökkva ~ tilboði inn á Facebook að morgni á námskeiðadags. Vertu vinur núna...
www.facebook.com/hradlestrarskolinn

 ~ Hrökkva eða Stökkva á SMS ~
Viltu fá tilboðið í SMS í símann? - skjóttu þá GSM númeri þínu á netfangið – mailto:frettabref@h.is