Hraðlestrarlykillinn - vertu með á nótunum - lestu meira - lærðu meira - náðu forskoti
2. Árg. 1. Tbl.  - Janúar 2011
www.Hraðlestrarskólinn.is

Daginn Subscriber,

Jón Vigfús - Skólastjóri HraðlestrarskólansÉg vildi byrja á að óska þér og þínum gleðilegs nýs árs og vona að jólahátíðin sem nú er á enda að kvöldi þrettándans hafi verið ánægjuleg.

Þá er enn eitt spennandi ár að baki og annað enn meira spennandi að taka við.  Það má vægast segja að tíminn líði hratt þegar það er gaman hjá okkur og er það án vafa það sama upp á teningnum hjá þér.

Framundan er ný önn hjá Hraðlestrarskólanum í takt við nýjar annir og lok námsvetrar framundan hjá velflestu námsfólki landsins.  Mikið atriði að nýta tímann vel og takast á við drauga fyrri anna og tækla vandamál áður en þau gera okkur erfitt um vik á þessari önn.

Í tengslum við það ætla ég í þessu tölublaði að skoða ég 11 11 einföld ráð fyrir þig til að hafa næstu önn á hreinu - og er ég með mjög ítarlega grein þar sem ég tek þessi ráð fyrir..
Ég kynni líka FRÍTT póstnámskeið í tengslum við grein sem ég kynnti fyrir ykkur í síðasta tölublaði um 11. einföld ráð til að lesa námsbók og tek síðan fyrir spurningar frá síðasta tölublaði.

Um leið og ég þakka þér fyrir að sýna fréttabréfi Hraðlestrarskólans áhuga þá vil ég kalla eftir ábendingum um efnistök í næstu tölublöðum.  Ef þú vilt að ég fjalli um eitthvað sérstakt vil ég að þú skjótir til mín ábendingu um það efni á netfangið frettabref@h.is
Lykillinn þinn að meiri árangri...
11 einföld ráð fyrir þig til að hafa næstu önn á hreinu

Þegar afslöppun okkar í jólafríi eða sumarfríi nær hæstu hæðum örlar þó alltaf á smá stressi og kvíða undir niðri gagnvart næstu önn eða Njóttu þess að vera í fríi og undirbúðu næstu önn með stælnámsvetri.  Hvernig náum við að tækla kennsluefnið og sinna okkar, lendum við í vandræðum eða munu gamlir draugar prófkvíða, tímaleysis eða námsleiða hindra okkur í að njóta skólans og tímans þar.

Þegar þessi tilfinning kemur upp er mikilvægt að horfa til þess að það er gríðarlega margt sem við getum gert til að auðvelda okkur námið - undirbúningur og þjálfun er eðlilegur þáttur í öllu sem við ætlum að byggja upp færni í - hvort sem það eru íþróttaiðkun, vinna eða nám.  Undirbúningur ætti að vera eðlilegur þáttur í fríi - aðeins þannig getum við útrýmt kvíða eða streitu fyrir framtíðarverkefnum - því við vitum að við munum takast á við næstu önn betur en við tókumst á við þessa önn.

Til er fræg saga af Michael Jordan einum allra besta körfuboltamanni heims - en andstæðingar hans töluðu sérstaklega um að það væri mjög sérstakt hvernig hann gæti alltaf komið betri til leiks á næstu leiktíð - ár eftir ár eftir ár.  Ástæðan einföld.  Þegar aðrir leikmenn NBA deildarinnar fóru í frí - fór Michael Jordan heim að æfa.  Hann hafði skráð hjá sér allt sem að hann taldi vera sér til vandræða og fríin tók hann í að þjálfa færni í að útiloka þetta.  Hann vissi það sem rétt er að með því að gera hlutina nógu oft - þá eru líkurnar á því að þetta sé að trufla okkur á álagstímum litlar sem engar.

Þetta sama er hægt að gera í náminu og því hef ég tekið saman nokkra punkta - 11 einföld ráð til að hafa næstu önn á hreinu...

1. Þú þarft að ná stjórn á tímanum þínum
2. Þú verður að þekkja styrkleika þína og veikleika í námi
3. Þú verður að hætta að vinna að mörgum hlutum í einu
4. Þú þarft að temja þér hraðlestur
5. Þú verður að ná tökum á forlestri kennslubóka
6. Þú verður að ná færni í að skipuleggja tímanotkun
7. Þú þarft að þjálfa markvissari glósuleiðir
8. Þú verður að kunna að setja þér markmið og vinna að þeim
9. Þú verður að þekkja leiðir að því að móta, breyta og skipta út venjum
10. Þú þarft að finna þér í námsþjálfara sem heldur þér við efnið
11. Þú þarft að hugsa um sjálfan þig


Kíktu á lengri útgáfu af greininni á:  www.h.is/blogg
...er með ADHD og á við mikla námsörðugleika en..
Fjölmargir nemendur Hraðlestrarskólans undanfarin ár og hafa greinst með ADHD eða finna fyrir miklu einbeitingarleysi við lestur tala um það að úrræðin sem við hraðlestrarnámskeiðið og hraðlestrartæknin bendir á er að hjálpa þeim að halda einbeitingu með miklu betri hætti en þeir bjuggust við.

Ein af nemendum námskeiðsins sem hefur nefnt þetta er Arna Skaptadóttir en hún er 22 ára námsmaður sem hefur átt við mikla námsörðugleika að stríða í gegnum tíðina og hefur verið greind með ADHD en hún talaði um það sérstaklega að þetta hefði hjálpað henni að halda mikilli einbeitingu í þungum lestri og að hún hafi alls ekki búist við svona miklum framförum við lestur með því að sitja hraðlestrarnámskeiðið.

Í 2 ár hefur hraðlestrarskólinn einmitt unnið með ADHD-samtökunum í að bjóða félagsmönnum að nýta námskeiðið með afslætti enda mjög margir þeirra sem hafa greinst lent í vandræðum í námi.

Nemandi sem sat námskeiðið fyrir tveimur árum - doktorsnemi - benti einmitt á það á sínum tíma og varð til að þetta samstarf hófst við ADHD-samtökin - hve mikið það hefði munað fyrir hana að nota hraðlestrartæknina og glósuaðferðir þær sem þar voru kenndar til að útiloka það vandamál að hugurinn væri farinn á flakk eftir nokkar sekúndur.  Trúði því ekki að hún hefði komist svona langt í námi áður en hún kynntist þessari aðferð.
FRÍTT póstnámskeið fyrir þig...

Í tilefni af vinsældum greinarinnar um 11 einföld ráð til að lesa námsbók - með góðum skilningi og án þess að svæfa þig - sem ég kynnti fyrir þér í síðasta tölublaði og miklum viðbrögðum námsfólks við henni ákvað ég að henda í loftið 3 vikna FRÍU póstnámskeiði.

Pósturinn hjá mér fylltist af spurningum eftir að greinin birtist enda vildu margir fá aðeins meiri upplýsingar um efnið og er þessu námskeiði ætlað að svara þeim eins ítarlega og hægt er.

Eðlilega kemur ekkert í staðinn fyrir ALVÖRU námskeiðin (",) - Hraðlestrarnámskeið + framhaldsnámskeiðin tvö en þar er þetta efni tekið fyrir frá A-Ö.

Námskeiðið er byggt þannig upp að þú færð póst annan hvern dag þar sem hvert ráð er skoðað ítarlega, myndskeið og mp3 skrá - sem hægt er að hlaða niður og horfa á aftur - í boði og ekkert því til fyrirstöðu að kalla síðan eftir enn meiri hjálp ef það koma upp fleiri spurningar.


NÁÐU ÞÉR Í FRÍTT PÓSTNÁMSKEIÐ HÉR
Kennari Hraðlestrarskólans gefur út bók með Brian Tracy


Brian Tracy er mörgum Íslendingum kunnur frá ófáum fyrirlestrum sem hann hefur haldið hér á landi á undanförnum áratugum.  Brian Tracy hefur skrifað yfir 45 bækur, en margar þeirra hafa vermt metsölulista um allan heim.  Hann hefur verið ráðgjafi yfir 1.000 fyrirtækja og haldið yfir 4.000 fyrirlestra eða ræður fyrir um 4.000.000 manns í 42 löndum.  Hægt er að sjá frekari upplýsingar um Brian Tracy hér

Jón Vigfús Bjarnason hefur rekið Hraðlestrarskólann frá árinu 2005 en hefur verið viðriðin eigin rekstur með einum eða öðrum hætti í hartnær 15 ár.  Í gegnum kennslu á hraðlestri fyrir fyrirtæki og stjórnendur hefur hann fundið fyrir miklum áhuga og þörf eigenda lítilla fyrirtækja og stjórnenda að hafa meiri tíma í sínum störfum og að vinna mun markvissar.  Hægt er að sjá frekari upplýsingar um Jón Vigfús hér

Bókin heitir - Counter Attack: Business Strategies for Explosive Growth in the New Economy - og er væntanleg í verslanir 20. janúar 2011

"Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt."
- Einar Benediktsson, skáld (1864-1940)
Hafðu í huga að dagurinn í dag er eins frábær og þú vilt að hann sé - það er þitt að ákveða.  Njóttu dagsins Subscriber - alla daga.

Með kærri kveðju,


Jón Vigfús Bjarnason,
Skólastjóri Hraðlestrarskólans

Netfang: jovvi@h.is
Sími: 773-0100
Skype: jonvigfus
Facebook: www.facebook.com/jonvigfus
------
"Lesturinn er huganum það sem hreyfingin er líkamanum" - Pétur Gunnarsson, rithöfundur
---------------
Í ÞESSU TÖLUBLAÐI...
11 einföld ráð fyrir þig að hafa næstu önn á hreinu
...er með ADHD og á við mikla námsörðugleika að stríða en...

BEINT INN Á...
~ SKRÁNING ~
Næstu námskeið
90 Dagar til að toppa námsárangurinn
Hraðlestrarkrakkar
Framhaldsnámskeið
Síðustu forvöð að vera með í 90 daga námsferlinu


Nú eru línurnar í 90 daga námsferlinu að skýrast óðum.  ...allt tilbúið fyrir 13. JANÚAR. 
Áhugi nemenda enda verið mjög góður og margir forvitnir hvort árangur sé og verði eins góður og vonir standa til.
Mín reynsla er einfaldlega sú af ferli sem þessu að ef metnaður nemanda er fyrir hendi þá er ekkert sem stöðvar hann og hef ég sjálfur á tæpu ári náð að klára um 90% af markmiðum mínum bara með því að sinna ferli sem þessu.  Hlakka því sjálfur mikið til.
Dagskráin verður mjög þétt en markmiðið er ekki endilega að kenna metnaðarfullum nemanda að læra - heldur frekar að gefa honum tækin og tólin - sem hann getur síðan nýtt í framhaldinu til að festa þessa þætti betur í sessi - og náð markmiðum sínum sjálfur - skref fyrir skref.
    Kynntu þér málið hvernig þú færð þinn eigin námsþjálfara fyrir aðeins 950 kr. á viku - www.h.is/90dagar
Ég missi mjög fljótt niður einbeitingu við lestur - hvað get ég gert?
   Þessi spurning barst eftir síðasta fréttabréf og minni ég á að senda mér endilega spurningar ef þið viljið fá fleiri lausnir í næsta fréttabréfi.

   Það að missa niður einbeitingu við lestur er gríðarlega algengt vandamál og er þetta mjög algengt þegar mjög þungur eða flókinn texti á í hlut.
   Ástæðan fyrir þessu er blanda af nokkrum ástæðum.  Stór þáttur er það að þegar við lesum svona þungan og flókin texta - þá byrja mjög margir að hægja á sér.  Lestrarhraðinn þeirra dettur mikið niður - því ein af gömlu ranghugmyndunum var að við ættum að passa upp á að lesa aldrei hraðar en að við værum að skilja hvert orð.
    Það sem kemur mjög mörgum á óvart þegar þeir koma á hraðlestrarnámskeið er að uppgötva að lágmarkshraði hugans er í kringjum 400 orð á mínútu og ef við erum að lesa undir því þá eigi hugurinn okkar svo auðvelt með að fara velta öðrum hlutum fyrir sér.
    Ef við tengjum það við að velflestir námsmenn eru að lesa sitt námsefni á í kringum 100-150 orð á mínútu þá sjáum við fljótt afhverju einbeiting er vandamál.
    Þegar við hægjum svona mikið á okkur þá hefur hugurinn ennþá 250-300 orð á mínútu (miðað við 400 orð á mínútu sem lágmarkshraða) til að fara að hugsa um verkefnin í næstu viku, samtal við vinina, bíómyndina sem við horfðum á í gær og áður en þú veist af er einbeiting þín farin út um þúfur.

Lausn:

Ætlaðu þér að lesa textann oftar en einu sinni.  Í hvert sinn ætlar þú þér að lesa hann með skýru markmiði - um að sækja ákveðnar lykilupplýsingar.  Ef þú t.d. eyðir 5-15 mínútum í að kynna þér efni textans, mikilvæg hugtök og spurningar sem höfundur reynir að svara - áttu alltaf auðveldara með að lesa textann hraðar.
Framhaldsnámskeiðin...
Hraðlestrarkrakkar - 10-12 ára


Á Næsta krakkanámskeið hefst 19. jan
Kynntu þér málið á Hraðlestrarkrakkar.is

Hvernig á að nota iMindMap í námi?
Næsta iMindMap námskeið er 18. jan
Kynntu þér málið á h.is/imindmap

Hvernig á að lesa námsbók?
Næsta námsbókarnámskeið er 25. jan
Kynntu þér málið á h.is/namsbok
Við ábyrgjumst árangurinn















Kynntu þér ábyrgðina okkar á hraðlestrarnámskeiðunum. 
Við leggjum allt okkar í að þér gangi vel - ekki bara í dag - ekki bara á morgun - ekki bara á meðan að á námskeiði stendur - heldur alla ævi - því þú átt það skilið.

KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ HÉR
HAFÐU SAMBAND
Hraðlestrarskólinn
SÍMI: 773 - 0100
NETFANG: jovvi@h.is
SKYPE: jonvigfus
FACEBOOK:
www.facebook.com/hradlestrarskolinn
~ VERTU VINUR

 ~ Hrökkva eða Stökkva á Facebook ~
Vertu vinur á Facebook því af og til ef fólk dettur út á síðustu stundu mun ég skjóta ~ Hrökkva eða Stökkva ~ tilboði inn á Facebook að morgni á námskeiðadags. Vertu vinur núna...
www.facebook.com/hradlestrarskolinn

 ~ Hrökkva eða Stökkva á SMS ~
Viltu fá tilboðið í SMS í símann? - skjóttu þá GSM númeri þínu á netfangið – mailto:frettabref@h.is


Share this