Hraðlestrarlykillinn - vertu með á nótunum - lestu meira - lærðu meira - náðu forskoti
1. Árg. 1. Tbl.  - Júlí 2010
www.Hraðlestrarskólinn.is
Daginn Subscriber,

Jón Vigfús - Skólastjóri HraðlestrarskólansÉg vildi byrja á að þakka þér fyrir að sýna fréttabréfi Hraðlestrarskólans áhuga og eftir langa og stranga meðgöngu er loks komið tækifæri til að skella því í gang.  Miklar breytingar hofa orðið hjá Hraðlestrarskólanum undanfarið ár - fjölmörg ný námskeið litið dagsins ljós - ný vefsíða  - nýtt símanúmer - meiri samvinna við Háskóla landsins og/eða nemendafélög þeirra og hefur það gert það að verkum að vinna við þetta fyrsta fréttabréf tafðist. 

Í þessu fyrsta tölublaði ætlum við að taka á lestri skáldsagna yfir sumarið og hvað þú þarft að hafa í huga.  Við ætlum að skoða árangur Stefaníu Eyþórs og hvernig hennar árangur gæti auðveldað þér námið í haust og vetur.  Ég ætla síðan að kynna fyrir þér glænýtt 90 daga námsferli með þér og kynna þar leiðir sem ég hef sjálfur verið að nota til að koma Hraðlestrarskólanum aftur af stað eftir 2 erfið ár.
Lykillinn þinn að meiri árangri...
11 góð ráð til að lesa meira í sumar.
 Eitt af því allra skemmtilegasta sem við getum gert á sumrin er að njóta góðra bóka.  Það að lesa góða bók í sumarbústaðnum, í útilegunni, í sólbaðinu, á sundlaugarbakkanum, í garðinum eða í raun hvar sem við viljum, leyfa huganum Njóttu þess að lesa bækur í sumarað slaka á og heimsækja ókunn lönd, borgir og fá að njóta lífsreynslu annarra er stórkostleg upplifun.  Vandi margra er aftur á móti – tíminn sem það tekur þau að ljúka allsæmilegri bók.

Vandinn hjá okkur liggur í flestum tilfellum í nokkrum þáttum og þá helst gömlum venjum sem halda aftur af okkur, jafnan gamlar kreddur sem lifa enn góðu lífi og síðan einbeitingarleysi okkar sem eykst óðum í ys og þys nútímalífs. 

Viltu lesa meira af  skáldsögum?
  1. Vertu virkur lesandi
  2. Stjórnaðu augunum
  3. Notaðu fingur/penna til að leiða augun þín í gegnum texta
  4. Reyndu að leiða augun síðan alltaf örlítið hraðar í gegnum textann
  5. Hafðu markmið lesturs á hreinu
  6. Njóttu hugarheims höfundar
  7. Gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn
  8. Ekki stoppa við orð/hugtök sem þú þekkir ekki
  9. Leyfðu söguþræði bókarinnar að grípa þig og auka lestrarhraða enn frekar
  10. …en fyrst og fremst; Njóttu bókarinnar…
  11. …og umfram allt; Byrjaðu strax á að lesa allavega 10-15 blaðsíður í næstu bók um leið og hin klárast.
Þessi 11 einföldu ráð til að lesa meira í sumar - lyfta upp lestrarhraða - byggja upp orðaforða - leyfa huganum að fá smá hvíld frá þungum námsbókum og gera okkur um leið kleift að takast betur á við lesefnið næsta haust.

Kíktu á lengri útgáfu af greininni á:
www.h.is/skaldsogur
Engar andvökunætur í næstu prófatörn
Í sumar kynnti Hraðlestrarskólinn þá nýjung að bjóða upp á helgarnámskeið víðsvegar um landið.  Þessi tilraun heppnaðist vægast sagt afar vel og voru fjölmargir sem sáu sér hag af því að kíkja á helgarnámskeiðið.

Ein þeirra sem skellti sér á námskeið var Stefanía Eyþórsdóttir og náði hún verulega góðum árangri og nefndi sérstaklega að andvökunætur sem hún - og svo margir aðrir námsmenn - hafa þurft að búa við, yrði ekki lengur til vandræða á næstu árum.

Þetta stemmir vel við það sem aðrir nemendur hafa nefnt við mig þegar þeir koma aftur til að nýta æviábyrgðina sína og skerpa aðeins á kunnáttunni. 

Þegar þú hefur tök á að komast yfir allt lesefnið þitt - jafnt og þétt yfir önnina - þarf ekki lengur að eyða heilu helgunum og nóttunum í prófalestur. 

Það eina sem þú þarft að gera er að festa lykilatriði í sessi með því að nýta glósurnar og ýta þannig við huganum.

Eitt af því sem Stefanía nefndi líka var sú hvatning sem námskeiðið veitti henni enda var aukning á lestrarhraða og lestrarskilningi vel rúm tvöföldun - frá Laugardegi kl. 12 til Sunnudags kl. 16.  Eðlilega ýtir þetta nemanda til að halda æfingum áfram enda fylgir námskeiðinu 3 vikna æfingakerfi þar sem nemandi fær nánari fyrirmæli daglega í 21 dag og því frábært tækifæri til að festa þannig nýju lestrartæknina vel í sessi.
90 dagar til að toppa námsárangurinn

Í rúma 6 mánuði hef ég kynnst því hvað 90 daga markvisst æfingakerfi getur gert til að koma okkur í réttan farveg þar sem ég hef sjálfur verið í slíkum hópi sjálfstæðra atvinnurekenda - hvaðanæva um heiminn.  Hver og einn að vinna sig út úr þeim hremmingum sem undanfarin 2 ár hafa lagt á efnahagskerfi heimsins.

Án vafa get ég sagt að markmið, venjur og vinna við verkefni gerist miklu markvissari með því að vinna það með þeim hætti sem þarna var kynnt og nú vil ég kynna þetta sama verkferli fyrir námsmenn hér á Íslandi og hefjum við 90 daga námsferlið - 10. september.

Framkvæmd og eftirfylgni í 90 daga ásamt vikulegum veffundum um nám, venjur, tímastjórnun o.fl.

Ferlið virkar í gegnum samtakamátt margra, markvissri kunnáttu á því hvernig við náum árangri, tæklum markmið og breytum venjum okkar. 

Við leitum nú að metnaðargjörnum nemendum sem vilja taka þátt í fyrsta 90 daga námsferlinu - Nemendur sem vilja toppa námsárangur sinn á 90 dögum - frá og með 10. september.

Kynntu þér málið á www.h.is/90dagar - Sérstakt tilboð fyrir fyrstu 20 sem skrá sig
"Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt."
- Einar Benediktsson, skáld (1864-1940)
Hafðu í huga að dagurinn í dag er eins frábær og þú vilt að hann sé - það er þitt að ákveða.  Njóttu dagsins Subscriber - alla daga.
Njóttu dagsins - alla daga
Með kærri kveðju,


Jón Vigfús Bjarnason,
Skólastjóri Hraðlestrarskólans

Netfang: jovvi@h.is
Sími: 773-0100
Skype: jonvigfus
Facebook: www.facebook.com/jonvigfus
------
"Lesturinn er huganum það sem hreyfingin er líkamanum" - Pétur Gunnarsson, rithöfundur
---------------
Í ÞESSU TÖLUBLAÐI...
11 góð ráð til að lesa meira í sumar
Engar andvökunætur á næstu prófatörn
90 Dagar til að toppa námsárangurinn

BEINT INN Á...
~ SKRÁNING ~
Næstu námskeið
90 Dagar til að toppa námsárangurinn
Framhaldsnámskeið
90 Dagar sem breyta lífi þínu sem námsmaður











 ~ Settu námið í fluggírinn - frá 10. september ~

Vertu með markmiðin á hreinu – bættu skipulag – náðu stjórn á tímanum þínum – taktu á venjum sem halda aftur af þér – og taktu á þeim STRAX.

SKRÁNINGIN ER HAFIN Á:
www.h.is/90dagar
Góðar bækur á að lesa oftar en einu sinni
   Góð bók gefur þér nýja innsýn í efni sitt í hvert sinn sem þú lest hana.  Í hvert sinn ertu aðeins eldri, reyndari og þroskaðari - allavega flestir ;-)
   Efni sem áður hafði enga merkingu - hefur nú yfir sér miklu meiri þýðingu fyrir þig.  Þú tekur eftir atriðum sem voru ofar þínum skilningi við fyrsta lestur en hafa nú fengið mynd.
   Þegar þú lest góða bók - veltu því fyrir þér hve mörg ár - af reynslu, kunnáttu og þekkingu - höfundur þess er að veita þér.  Hve mörg ár tók það hann að geta komið efninu frá sér með þessum hætti?
   Finnst þér eðlilegt að ætlast til þess af þér að ná þessu efni af mikilli dýpt með því að lesa það einu sinni yfir?
NÝTT - Helgarnámskeið
NÝTT!! - HELGARNÁMSKEIÐ + 3 VIKNA ÆFINGARKERFI Í FJARNÁMI

Helgarnámskeið Hraðlestrarskólans er nýjung ætluð þeim er þurfa að fá grunnþekkingu í hraðlestrartækninni strax. Kennari leiðir þátttakendur í gegnum kennsluefnið á einni helgi - 4 klukkustundir hvorn dag. Eftir helgarnámskeiðið tekur við 3 vikna æfingarkerfi þar sem nemandi beitir nýrri lestrartækni daglega og festir hana í sessi til frambúðar.

Næstu helgarnámskeið eru:
Reykjavík - 17. júlí
Stykkishólmur - 24. júlí
Húsavík - 14. ágúst
Skráning á www.h.is
AFTUR Í NÁM!!
Það er að mörgu að huga ef þú ert aftur á leið í nám eftir langa fjarveru. 
   Eitt af því sem hjálpar þér er að þekkja hvaða leiðir henta þér við nám.  Þú hefur örugglega ákveðnar hugmyndir hvaða þættir hjálpa þér en ertu alveg viss?
   Hér eru slóðir á nokkur sjálfspróf sem gætu gefið þér ákveðna mynd af þér sem námsmanni.
   Talaðu við náms- og starfsráðgjafa í þínum skóla og óskaðu eftir að taka STRONG - áhugasviðspróf - það kostar - en er vel þess virði.
   Notaðu þessi sjálfspróf til að finna styrkleika og veikleika þína.  Þegar þú hefur þá mynd af þér getur þú tekið ákvörðun um næstu skref.
   Hvað þarftu að gera til að byggja upp þá þætti sem eru veikir hjá þér, hvernig getur þú styrkt enn frekar þá styrkleika sem munu hjálpa þér hvað mest.
   Góðar bækur um námstækni:
   Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur spurningar.
HAFÐU SAMBAND: frettabref@h.is
HAFÐU SAMBAND
Hraðlestrarskólinn
SÍMI: 773 - 0100

NETFANG: jovvi@h.is
VERTU VINUR
Hrökkva eða Stökkva á Facebook:
Vertu vinur á Facebook því af og til ef fólk dettur út á síðustu stundu mun ég skjóta ~ Hrökkva eða Stökkva ~ tilboði inn á Facebook að morgni á námskeiðadags. Vertu vinur núna...
www.facebook.com/hradlestrarskolinn


Hrökkva eða Stökkva á SMS:
Viltu fá tilboðið í SMS í símann? - skjóttu þá GSM númeri þínu á netfangið - frettabref@h.is
www.Hraðlestrarskólinn.is