Hraðlestrarlykillinn - vertu með á nótunum - lestu meira - lærðu meira - náðu forskoti
1. Árg. 2. Tbl.  - Júlí 2010
www.Hraðlestrarskólinn.is
Daginn Subscriber,

Jón Vigfús - Skólastjóri HraðlestrarskólansÉg vildi byrja á að þakka þér fyrir að sýna fréttabréfi Hraðlestrarskólans áhuga og kalla eftir ábendingum um efnistök í næstu tölublöðum.  Ef þú vilt að ég fjalli um eitthvað sérstakt vil ég að þú skjótir til mín ábendingu um það efni á netfangið frettabref@h.is

Sjálfur er ég smá hleðslu - koma batteríunum í fulla hleðslu áður en haustdagskráin fer á fullt.  Ný námskeið að hefjast í byrjun ágúst en svo fer allt á fullt í september.  Það hefur þó ekki verið nein lognmolla í sumar enda margir snjallir að nýta sumarið til að koma lestrarhraðanum upp fyrir haustið og námskeiðatúrinn um landið gengið framar öllum vonum og nú þegar eru Símenntunarstöðvar búnar að festa nokkrar helgar strax aftur um landið svo námskeiðhaldið um helgar út um allt land heldur áfram fram í lok október.

Núna þegar skólastarfið fer að hefjast aftur er ekki úr vegi að velta fyrir okkur leiðum við að koma okkur í form - hvað námsvenjur snertir.  Ætla að renna yfir nokkrar einfaldar leiðir til að hefjast handa og hve mikilvægt það er að hafa þolinmæði til að leyfa nýjum venjum að festast í sessi og auðvelda okkur skólann.
Ég fer líka aðeins í gegnum það hvernig ég gafst upp á að segja endalaust NEI við nemendur og foreldra og upp úr því komust nýju krakkanámskeiðin okkar - Hraðlestrarkrakkar - á dagskrá.  Námskeið sem eru ætluð aldurshópnum 9-12 ára.
Lykillinn þinn að meiri árangri...
Aftur í nám - vangaveltur um námsvenjur og námstækni og hvernig við getum auðveldað okkur skólagönguna – skref fyrir skref.
Það skiptir engu máli hvort stutt sé síðan að þú varst í námi og ert jafnvel að hefja aftur nám núna eftir sumarfrí eða ef það er langt síðan, jafnvel 5-10 ár síðan að þú sast á skólabekk síðast, það sem skiptir þig máli er að hafa í huga hve mikið góðar og markvissar námsvenjur og skýrari námstækni mun auðvelda þér vinnu í náminu á hverjum degi.  
En ég þarf eflaust ekki að segja þér það. 
Góðar námsvenjur eru byggðar upp - skref fyrir skrefEf þú ert meðal þeirra nemenda sem hafa sýnt námskeiðum Hraðlestrarskólans athygli þá hefur þú án efa sýnt fjölmörgum námstækninámskeiðum áhuga, og án  nokkurs vafa setið nokkur þeirra.  Ekki satt?  En hvað svo?  Hvað gerðist í náminu eftir að þú sast námskeiðið?

Vonsvik námskeiða
Í langflestum tilfellum breytist eitthvað til batnaðar hjá okkur.  Við lærum eitthvað sem við sjáum strax hag af að nýta okkur og það gerir okkur auðveldara um vik að sinna náminu.  En það voru án efa þó nokkuð margir þættir sem fjallað var um og okkur fannst spennandi en ekki eins áríðandi að tileinka okkur og því ákváðum við að einbeita okkur að einhverju einu ákveðnum þætti.  Þetta nefni ég vonsvik námskeiða því við náum sjaldan að breyta öllum þáttum eða tileinka okkur alla þætti og þurfum meiri tíma og er æviábyrgð námskeiða eitt svarið við því. 
Þannig náum við bara að breyta broti af því sem við þurftum og þar sem fæstum námstækninámskeiðum fylgir einhvers konar áætlun um eftirfylgni í framhaldi af námskeiði – þá fylgjum við því ekki sjálf eftir að halda áfram að bæta okkur eftir að nýrri venju hefur verið komið upp.

Mikilvægt að uppfæra námsvenjur
Um 95% af því sem við vitum um starfsemi heilans okkar eru upplýsingar sem hafa komið fram á síðustu tíu árum.  Þetta þýðir einfaldlega að við erum stöðugt að komast að nýrri og markvissari leiðum við að nýta hugann okkar af því að við erum stöðugt að læra nýja hluti um hann.  Það að halda í venjur sem við lærðum í grunnskóla eða menntaskóla – jafnvel þó það hafi bara verið fyrir 2-5 árum síðan - þýðir að við þurfum að uppfæra kunnáttu og færni okkar oftar.

Markmið annar:
Þú þarft því að hugsa hverja önn sem leið til að breyta 3-5 venjum – finna þær venjur sem eru að gera þér erfitt fyrir – finna leiðir sem auðvelda þér – gera þig markvissari. 

Góð leið til að finna þær venjur sem þarf að breyta er að leita uppi venjur sem ýta undir streitu, kvíða eða frestunarhneigð hjá okkur.  Ef einhver þessara atriða koma upp við vinnu okkar eru það skýr merki um það að við þurfum að finna og byggja upp betri venjur til að hjálpa okkur.  Þær gefa Engu máli skiptir hve langt er síðan setið var á skólabekkokkur hugmyndir að venjum sem hafa lokið sínum líftíma – dæmi um venju sem við tókum upp einhvern tímann á lífsleiðinni – en er nú að hamla okkur – hindra framför okkar.  Þessum venjum þurfum við að skipta út og setja nýjar markvissari venjur í staðinn.

Að lokum
Það sem skiptir þó mestu máli er að vita af því að þetta er alltaf spurning um að breyta venjum og þeim breytir þú aðeins með tímanum.  Þú verður að átta þig á því að það er ekki auðvelt – því gamlar venjur sitja fast og minna á sig – nýjar venjur eru yfirleitt óþægilegar og óþjálar – í upphafi.  Þess vegna verður það okkur erfitt að koma þeim inn í kerfið okkar – teljum jafnan að merki um það hvað þær eru óþægilegar sé í raun skýrt dæmi um að þær séu rangar.  Vandamálið er oft það að við hugsum ekki út í það þegar við lærum eitthvað nýtt þá er það okkur – alltaf – óþjált í upphafi. 
Við þurfum að gefa okkur tímann til að þjálfa þessa færni – koma upp nýrri venju. Vera þolinmóð og leyfa tímanum að vinna með okkur.  Setja upp áætlun – áætlun til 90 daga eða 180 daga þar sem við erum dag fyrir dag að taka jákvæð skref í átt að betri námsvenjum og auðveldara lífi í náminu.

Kíktu á lengri útgáfu af greininni á:  www.h.is/blogg
Ég get lifað eðlilegu, daglegu lífi
Flestir sem sækja námskeiðin sækja þau í von um að geta sinnt fjölskyldulífi, vinnu, íþróttum eða félagslífinu þó þau séu í skóla.  Árangur í námi enda tengdur því að okkur líði vel í náminu og ef námið stelur öllum okkar tíma vill oft eitthvað láta undan.

Þórdís Magnúsdóttir er 25 ára tilvonandi lögfræðinemi og var ein þeirra sem nýtti sér tækifærið, skellti sér á námskeið í sumar þar sem hún hafði áhuga á því að eiga eitthvað líf utan skóla.  Hafði séð fyrir sér þá Umsögn Þórdísar Magnúsdótturframtíðarmynd næstu 5 árin að sitja ein og innilokuð yfir námsbókunum - í skólanum, inni á bókasöfnum eða heima hjá sér.

Þetta er þó ekki óalgengt líf hjá námsfólki enda námið okkur mikilvægt.  Jafnan grunnur að framtíðaráætlunum þeirra að klára skólann með ákveðnum árangri, þar sem rétt vinna býður eða framhaldsnám í farvatninu.

Mjög algengt er að margir skrái það hjá sér í umsögnum um námskeiðið eða tali um það við mig á námskeiðunum að þeirra helsta eftirsjá eftir að sitja námskeiðið hafi verið að koma ekki miklu mun fyrr.  Að þau hafi beðið svo lengi með að sækja námskeiðið.

Það er líka mikil ánægja að sjá hve mikið af ungu fólki sækir námskeiðin - þó svo meðalaldur á námskeiðunum sé ekki hár eða 27 ár - þá hefur þeim fjölgað sem eru 13-15 ára og eiga því talsvert auðveldari skólagöngu fyrir höndum í framtíðinni - sérstaklega þar sem æviábyrgðin tryggir þeim kost á að sitja námskeiðið aftur seinna.

Enda tekur Þórdís það sérstaklega fram í umsögn sinni að hún sé ekki bara viss um að ná góðum tökum á öllu námsefninu í framtíðinni - sem er jú helsta markmið námskeiðsins.  Hún sér fram á að geta átt aðeins auðveldar skólagöngu fyrir höndum - að geta átt líf utan náms - að daglegt líf hennar þurfi ekki að fara algjörlega úr böndunum þó hún sé í námi.
Hraðlestrarkrakkar - námskeið fyrir 9 til 12 ára

   "LOKSINS" segja sum ykkar - allavega velflest ykkar sem hafið setið námskeiðið og eigið börn eða systkini á þessum aldri enda hef ég í fjölmörg ár þurft að Fyrir krakka sem vilja lesa meirasegja NEI við ykkur.  Lágmarksaldur hjá okkur hefur verið 13 ár - og þá yfirleitt horft til fermingaraldurs - en málið var aldrei það að hraðlestrartæknin sjálf væri svo flókin - hún er það ekki.
   Vandamálið var alltaf að þær æfingar sem ég renni með nemendum í gegnum voru oft erfiðar og flóknar - þegar heim var komið - og nemendur einir að vinna sína vinnu.  Eldri einstaklingar eru duglegri að sækja hjálp - krakkarnir eru feimnari við það.
    Þess vegna fór ég af stað að leita leiða til að koma hraðlestrartækninni til skila með mun einfaldari hætti þannig að það henti til kennslu yngri barna og með hjálp frá eigin börnum, frændum, frænkum ( sem ég þakka gott starf sem tilraunadýr) - hefur einfaldari leið verið fundin.
Fyrstu almennu námskeiðin hefjast í byrjun september og erum við að leita að fyrstu 10 börnunum til að renna í gegnum námskeiðið og vil því kynna þetta fyrst hér.
    Kynntu þér málið á www.h.is/krakkar
"Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt."
- Einar Benediktsson, skáld (1864-1940)
Hafðu í huga að dagurinn í dag er eins frábær og þú vilt að hann sé - það er þitt að ákveða.  Njóttu dagsins Subscriber - alla daga.
LOL
Með kærri kveðju,


Jón Vigfús Bjarnason,
Skólastjóri Hraðlestrarskólans

Netfang: jovvi@h.is
Sími: 773-0100
Skype: jonvigfus
Facebook: www.facebook.com/jonvigfus
------
"Lesturinn er huganum það sem hreyfingin er líkamanum" - Pétur Gunnarsson, rithöfundur
---------------
Í ÞESSU TÖLUBLAÐI...
Aftur í nám - Námsvenjur
Ég get lifað eðlilegu lífi
Hraðlestrarkrakkar - 9-12 ára

BEINT INN Á...
~ SKRÁNING ~
Næstu námskeið
90 Dagar til að toppa námsárangurinn
Framhaldsnámskeið
90 Dagar sem breyta lífi þínu sem námsmaður











 ~ Settu námið í fluggírinn - frá 10. september ~

Vertu með markmiðin á hreinu – bættu skipulag – náðu stjórn á tímanum þínum – taktu á venjum sem halda aftur af þér – og taktu á þeim STRAX.

SKRÁNINGIN ER HAFIN Á:
www.h.is/90dagar
Stofnaðu alvöru glósuhóp
   Smá hugmynd fyrir þá fjölmörgu metnaðargjörnu námsmenn sem lesa þetta fréttabréf.  Af hverju býrðu ekki til alvöru glósuhóp?
   Og hvernig vinnur hann?
   Jú, í upphafi annar skiptið þið bókum annarinnar á milli hópsmeðlima og notið fyrstu 2-3 helgarnar til að lesa þær frá byrjun til enda.  Glósið þær - kafla fyrir kafla - gerið t.d. hugarkort út frá hverjum kafla.
   Setjist síðan niður og látið þann sem las bókina renna með ykkur í gegnum glósurnar.
   Restin af önninni fer þá í að rifja lesefnið upp en ekki að læra.  Hver kennslustund verður mun markvissari því þið þekkið lesefnið betur.  Hafið jafnvel þekkt lesefnið í 2-3 mánuði þegar kemur að prófum. 
   Glósur tilbúnar frá byrjun annar og ef hugarkortin hafa verið notuð þá ertu bara að fylla inn í myndina því þú þekkir viðfangsefnið líkt og lófann þinn.
Hve auðveld verða prófin þá?
NÝTT – Helgarnámskeið
NÝTT!! - HELGARNÁMSKEIÐ + 3 VIKNA ÆFINGARKERFI Í FJARNÁMI

Helgarnámskeið Hraðlestrarskólans er nýjung ætluð þeim er þurfa að
fá grunnþekkingu í hraðlestrartækninni strax. Kennari leiðir
þátttakendur í gegnum kennsluefnið á einni helgi - 4 klukkustundir
hvorn dag. Eftir helgarnámskeiðið tekur við 3 vikna æfingarkerfi
þar sem nemandi beitir nýrri lestrartækni daglega og festir hana
í sessi til frambúðar.

Næstu helgarnámskeið eru:
- Húsavík - 14. ágúst
- Akureyri - 21. ágúst
- Suðurnes - 28. ágúst
- Reykjavík - 4. september

Skráning á www.h.is
~ Taktu glósuæfingu ~
Það er engum gefið að vera góður í því að glósa - enginn fæðist sem góður glósari (",) - Allavega veit ég ekki til þess að glósugenið sé fundið.
   Glósutækni er eins og allt annað eingöngu spurning um tíma og markvissa vinnu við að ná færni í mikilvægri tækni.
   Eitt af því sem ég bendi oft nemendum á er að nýta tímann fyrir framan sjónvarpið til að þjálfa glósutæknina.
   Næst þegar þú horfir á fréttir eða fræðsluþátt - láttu sem þú sért í tíma og þjálfaðu þá glósutækni sem þú ætlar að beita í skólanum.
   Þegar kemur að því að þú ferð að nota glósutæknina í skólanum býrðu yfir þeirri þjálfun sem þú þarft til að glósa hratt og örugglega.
   Þeir sem að eru vanir þjálfun vegna ýmiskonar íþróttaiðkana þekkja vel mikilvægi þess að vera í þjálfun. Að búa yfir færninni þegar reynir á í keppni.
   Það sama á við hér.
   Fleiri atriði sem hægt er að nota við þjálfun...Útvarp, Geisladiskar með fræðsluefni o.fl.
   Manst þú eftir fleiri leiðum?
   Skjóttu þá hugmyndinni til mín í pósti - frettabref@h.is

   Góðar bækur um námstækni:
 - Becoming a Master Student
 - The Buzan Study Skills Handbook

   Ekki hika við að hafa samband ef þú hefur spurningar.
HAFÐU SAMBAND: frettabref@h.is
HAFÐU SAMBAND
Hraðlestrarskólinn
SÍMI: 773 - 0100
NETFANG: jovvi@h.is
SKYPE: jonvigfus
FACEBOOK:
www.facebook.com/hradlestrarskolinn
~ VERTU VINUR

 ~ Hrökkva eða Stökkva á Facebook ~
Vertu vinur á Facebook því af og til ef fólk dettur út á síðustu stundu mun ég skjóta ~ Hrökkva eða Stökkva ~ tilboði inn á Facebook að morgni á námskeiðadags. Vertu vinur núna...
www.facebook.com/hradlestrarskolinn

 ~ Hrökkva eða Stökkva á SMS ~
Viltu fá tilboðið í SMS í símann? - skjóttu þá GSM númeri þínu á netfangið – mailto:frettabref@h.is