Hraðlestrarlykillinn - vertu með á nótunum - lestu meira - lærðu meira - náðu forskoti
1. Árg. 4. Tbl.  - September 2010
www.Hraðlestrarskólinn.is
Daginn [contact_attribute:firstname],

Jón Vigfús - Skólastjóri HraðlestrarskólansÉg vildi byrja á að þakka þér fyrir að sýna fréttabréfi Hraðlestrarskólans áhuga og kalla eftir ábendingum um efnistök í næstu tölublöðum.  Ef þú vilt að ég fjalli um eitthvað sérstakt vil ég að þú skjótir til mín ábendingu um það efni á netfangið frettabref@h.is

Vá (",) - hvað tíminn vill líða hratt þegar mikið er að gera.  Allir skólar landsins nú að fyllast af áhugasömum nemendum og um leið mikið af námsfólki að hafa samband enda sjá þeir mikinn hag að því að geta auðveldað sér námið með því að lesa hraðar.

Fór ég að því tilefni í herferð undir formerkjum þess að fá námsfólk til að stoppa að vera með nefið ofaní skólabókunum allan daginn...enda gengur námið út á meira en bara það að lesa námsbækurnar.  Eðlilega voru margir sem höfðu samband og vildu fá að vita meira.  Höfðu þörf fyrir að hafa bara meiri tíma í allt hitt - njóta lífsins, sinna áhugamálunum, fjölskyldunni, íþróttunum eða hverju því sem við höfum gaman af.

Í þessu tölublaði skoða ég 11 einfaldar leiðir á að takast á við námsbækurnar - með meiri skilningi og af meiri einbeitingu - og er ég með mjög ítarlega grein um þetta ásamt möguleika á að kalla eftir veglegu bókamerki um þessi 11 ráð.
Ég kíki líka á punkta um að halda betri yfirsýn yfir mikið lesefni í námi.  Og kynni samstarfsaðila okkar í tilefni af því að við ætlum að koma nemendaskírteinum í hendur allra þeirra sem hafa setið námskeiðið á undanförnum árum - eitthvað sem átti alltaf að gerast en...náði ekki að klára - fyrr en nú.
Lykillinn þinn að meiri árangri...

11 einföld ráð til að lesa námsbók með góðum skilningi og án þess að svæfa þig.
Þar sem skólar landsins eru nú allir í startholunum og námsannir almennt að hefjast er ekki úr vegi að kíkja á 11 einföld ráð til að takast á við námsbækurnar.  Þessar reglur ættu að gefa öllum þægilega yfirsýn á það hvernig þeir eiga að nýta tímann við lestur námsbókar.
Þessi 11 ráð eru byggð upp á ráðleggingum ýmissa meistara sem ég hef lesið í gegnum tíðina og eru öll atriði sem ég hef kennt og beðið nemendur um að tileinka sér á hraðlestrarnámskeiðum og framhaldsnámskeiðinu – Hvernig á að lesa námsbók? - og ef þú tileinkar þér þau hættir þú að finna fyrir því að hugurinn þinn fari að hugsa um eitthvað allt annað við lesturinn – og námsbókin á erfiðara með að svæfa þig.
Einbeiting og skilningur þinn á textanum við lestur verður allt annar – ástæðan einföld – þú ert núna að lesa með skýrt markmið í huga.  Þú ert að leita svara.  Þú ert ekki lengur að lesa námsbókina með svipuðum hætti og þegar þú lest skáldsögu – frá fyrstu síðu og til þeirrar síðustu.  Þú ferð í gegnum hana – með það að leiðarljósi að finna þau atriði sem kennari vill að þú sért að leggja áherslu á – að finna þau atriði sem höfundur vill að þú sért að leggja áherslu á.  Fyrir vikið situr meira eftir af aðalatriðum lesefnis – glósur verða markvissari og þú átt auðveldara með að tileinka þér og lesa allt lesefni sem þér er sett fyrir yfir önnina.

1. Gerðu þér grein fyrir að þú ætlir að lesa kaflann oftar en einu sinni
2. Hafðu markmið hvers yfirlesturs skýrt í huganum
3. Forlestur – út í hvað ertu að fara? - 20% af tíma
4. Lykilorð, lykilatriði og lykilhugtök
5. Búa til spurningar
6. Lestur kafla – leitaðu svara – 40-50% af tíma
7. Leggðu áherslu á lykilþætti úr forlestri
8. Vertu virkur lesandi
9. Svaraðu spurningum
10. Eftirlestur – er eitthvað að fara framhjá þér? - 20% af tíma
11. Leggja áherslu á veika bletti


Að lokum...
Innan hvers skrefs er síðan hægt að taka fleiri atriði og hef ég stiklað á þeim allra helstu í þessari grein en mun síðan koma með greinar sem fjalla sérstaklega um t.d. forlesturinn og eftirlesturinn, það að finna lykilatriði, vera virkur lesandi o.fl.  Mun ég skjóta þeim í loftið á næstu vikum og mánuðum í tengslum við námsferlið – 90 dagar til að toppa námsárangur – h.is/90dagar.
Ef þú vilt fá veglegt bókamerki með þessum 11 einföldu ráðum um það hvernig þú lest námsbók – skaltu ekki hika við að senda mér tölvupóst á jovvi@h.is – með nafni, heimilisfangi og póstfangi – og ég mun skjóta einu slíku til þín.

Kíktu á lengri útgáfu af greininni á:  www.h.is/namsbokin
...get lesið á sama hraða og fólk sem hefur ekki lesblindu.
Eitt af því sem nemendum Hraðlestrarskólans sem hafa verið greindir með lesblindu finna fyrir er hve auðvelt það er fyrir þá að takast á við textann sinn eftir námskeiðið.  Enda er það svo að sérkennarar, námsráðgjafar og aðrir sem vinna mikið með lesblindum eru að vísa nemendum sínum til okkar.
Hún Hafdís Sigurðardóttir, nemi í HR fann verulega fyrir þessu er hún sat námskeiðið fyrir stuttu og nefndi hún það sérstaklega í umsögn sinni eftir námskeiðið að nú hafði hún tök á að lesa á sama hraða og fólk sem hefur ekki lesblindu.
Hafdís er ekki ein um að finna fyrir þessu enda hafa fjölmargir nemendur Hraðlestrarskólans sem eiga við lesblindu að stríða með einhverjum hætti nefnt það í sínum umsögnum.
Ástæðan fyrir þessu er tiltölulega einföld.  Í stað þess að leggja áherslu á orð og bókstafi - er ég að kenna nemendum á hraðlestrarnámskeiði að horfa í heildarmyndina - að byggja upp meiri skilning á lesefninu í heild.
Það er því nefnilega þannig að þegar við vitum hvaða efni skiptir máli - hvaða orð og hugtök - hvaða lykilatriði eiga að vera á hreinu hjá okkur.  Þá verður mun auðveldara að takast á við lesefnið á meiri hraða.
Þær glósuaðferðir sem ég bendi á miða einmitt að því að lesblindir nýti betur glósur sínar til að byggja upp mun betri þekkingu í gegnum lestur því þeir vita hvaða atriði þeir eiga að leggja áherslu á í glósum sínum og leiðir að því að festa þessar glósur síðan betur í sessi.  Þannig geta þau kallað í þessar upplýsingar þegar þeim hentar - t.d. í prófi, kennslustund eða verkefnavinnu.
Það er ekki óalgengt að lesblindir nemendur séu um helmingi lengur að lesa í gegnum próftextann í fyrsta tíma en séu kannski ekki nema nokkrum mínútum lengur í lokaprófinu - sumir jafnvel búnir töluvert á undan öðrum sem ekki hafa greinst með lesblindu.
Því það er oft svo þegar við höfum þurft að basla í námi vegna lesturs að þegar við finnum lausn á vanda okkar - þá opnist flóðgáttir - og okkur standa allar dyr opnar.  Áhuginn verður fyrir vikið líka miklu meiri því við sjáum fyrir okkur að baslið er nú að baki - bjartari tímar eru framundan.
Enda nefndi Hafdís það sérstaklega í umsögn sinni að það hafi komið henni gríðarlega á óvart hversu frábært og gott námskeiðið væri og hve miklum árangri hún hafi náð á stuttum tíma.
Nemendaskírteinin að verða tilbúin og samstarfsaðilar að bætast við...
Loksins er langþráður draumur um að setja af stað nemendaskírteini fyrir nemendur Hraðlestrarskólans að verða að veruleika - enda eitt af markmiðum mínum í gegnum tíðina.  En það hefur ekki verið lát á samstarfsaðilum í gegnum tíðina sem hafa viljað auðvelda nemendum Hraðlestrarskólans að takast á við sitt nám - með ýmsum veglegum tilboðum og það á einnig við í dag.
Þeir nemendur sem vilja verða framarlega í röðinni - og kalla eftir nemendaskírteini sem fyrst bið ég um að hendast inn á www.h.is/nemendaskirteini - og slá inn allar upplýsingar - þannig náum við að koma þessum skírteinum sem fyrst í hendur ykkar.  Þeir nemendur sem sitja námskeið í dag fá þessi skírteini á meðan að námskeiði stendur.

Meðal samstarfsaðila sem bíða eftir að koma tilboðum til nemenda Hraðlestrarskólans eru Rizzo, Hamborgarafabrikkan, Study.is, Hugarkort.is, Eymundsson og fleiri sem enn eru í viðræðum við okkur og við kynnum síðar.

Hér ætla ég að kynna fyrstu tvo samstarfsaðilana en mun síðan kynna þá í hliðardálk í framtíðinni.  Nemendur geta síðan fengið nánari útlistun á tilboði frá samstarfsaðilum með því að skrá sig inn á nemendavef Hraðlestrarskólans - www.h.is/innskraning


Study.is - Vantar þig hjálp með stærðfræðina eða tungumálin

Hraðlestrarskólinn og Study.is hafa tekið höndum saman til að auðvelda nemendum hjá þeim enn frekar námið í haust og er Study.is að bjóða nemendum Hraðlestrarskólans afslátt af námskeiðum, prófarkalestri á verkefnum og ritgerðum og einkatímum.

Sjá meira um tilboð á nemendavef




Hraðlestrarhesturinn - Bókaklúbbur Eymundsson og Hraðlestrarskólans

Einn af óhjákvæmilegum fylgifiskum þess að sitja hraðlestrarnámskeið er að þú lest meira.  Bækur verða að stórum hluta í þínu lífi og það að lesa 2-4 bækur í mánuði gjarnan að venju.  Þegar svo er komið þýðir ekkert annað en að vera með okkar eigin bókaklúbb.

Hraðlestrarhesturinn er nýjasti bókaklúbbur Eymundsson og er hann stofnaður í samstarfi við Hraðlestrarskólann. Við ætlum að bjóða klúbbmeðlimum að fá sendar bækur annaðhvort einu sinni eða tvisvar í mánuði. Við ætlum að bjóða fólki upp á íslenskar og erlendar kiljur á frábæru verði.

Sjá meira um tilboð á nemendavef

Kynntu þér málið á www.h.is
"Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt."
- Einar Benediktsson, skáld (1864-1940)
Hafðu í huga að dagurinn í dag er eins frábær og þú vilt að hann sé - það er þitt að ákveða.  Njóttu dagsins [contact_attribute:firstname] - alla daga.

Með kærri kveðju,


Jón Vigfús Bjarnason,
Skólastjóri Hraðlestrarskólans

Netfang: jovvi@h.is
Sími: 773-0100
Skype: jonvigfus
Facebook: www.facebook.com/jonvigfus
------
"Lesturinn er huganum það sem hreyfingin er líkamanum" - Pétur Gunnarsson, rithöfundur
---------------
Í ÞESSU TÖLUBLAÐI...
11 einföld ráð til að lesa námsbækur
...get lesið á sama hraða og fólk sem er ekki með lesblindu
Nemendaskírteinin að verða tilbúin og samstarfsaðilar að bætast við

BEINT INN Á...
~ SKRÁNING ~
Næstu námskeið
90 Dagar til að toppa námsárangurinn
Hraðlestrarkrakkar
Framhaldsnámskeið
Síðustu forvöð að vera með í fyrsta 90 daga námsferlinu


Nú eru línurnar í 90 daga námsferlinu að skýrast óðum.  Veffundakerfið orðið virkt og allt tilbúið fyrir 10. september.  Áhugi nemenda enda verið mjög góður og margir forvitnir hvort árangur sé og verði eins góður og vonir standa til.
Mín reynsla er einfaldlega sú af ferli sem þessu að ef metnaður nemanda er fyrir hendi þá er ekkert sem stöðvar hann og hef ég sjálfur á tæpu ári náð að klára um 90% af markmiðum mínum bara með því að sinna ferli sem þessu.  Hlakka því sjálfur mikið til.
Dagskráin verður mjög þétt en markmiðið er ekki endilega að kenna metnaðarfullum nemanda að læra - heldur frekar að gefa honum tækin og tólin - sem hann getur síðan nýtt í framhaldinu til að festa þessa þætti betur í sessi - og náð markmiðum sínum sjálfur - skref fyrir skref.
    Kynntu þér málið hvernig þú færð þinn eigin námsþjálfara fyrir aðeins 950 kr. á viku - www.h.is/90dagar
Ég næ aldrei að klára að lesa allt það lesefni sem sett er fyrir?
   Þessi spurning barst eftir síðasta fréttabréf og minni ég á að senda mér endilega spurningar ef þið viljið fá fleiri lausnir í næsta fréttabréfi.

   Það að komast ekki yfir allt það lesefni sem okkur er sett fyrir í náminu - er einfaldlega mjög algengt vandamál.  Ég myndi áætla að upp undir 90% (og jafnvel meira) af námsfólki almennt sé í vandræðum með þetta.
   Ástæðan fyrir þessu er blanda af nokkrum algengum ranghugmyndum. Ein míta sem er mjög algeng og er að tefja fyrir er að það sé nóg fyrir okkur að lesa námstextann okkar bara einu sinni yfir.  Og líkt og ég tek á í 11 ráðunum hér til hliðar - er það mjög ósanngjarnt af okkur að ætla okkur það.
   Hin mítan er það að þungan námstexta - mikilvægan texta - eigi að lesa hægt og skýrt - og lesa hann frá byrjun til enda með 100% skilningi.
   Hið rétta er að það að hægja á lestrarhraða eykur einbeitingarleysi og hugurinn á auðveldara með að fara hugsa um annað - og áður en við vitum af þá þurfum við að fletta tilbaka og fara að lesa efnið allt aftur.
   Í stað þess að renna í gegnum námstextann með sama hugarfari - hægja á okkur - og lesa allann textann með 100% skilningi.  Þá er betra að átta sig á því - hvað skiptir máli.
   Hvaða lykilorð, lykilhugtök, aðalatriði og lykilsvör eigum við að hafa á hreinu eftir lesturinn?  Hvað er það sem höfundur er að leggja áherslu á?  Hvað vill kennari að við séum að leggja áherslu á?
   Þegar við höfum kynnt okkur þetta efni - t.d. með forlestri (sjá grein um námsbækur) - verður auðveldara fyrir þig að fara hraðar í gegnum efnið.  Jafnvel tvöfalt - þrefalt hraðar af því að þú ert að leita svara í efninu en ekki bara að lesa án þess að hafa skýrt markmið með lestrinum.
   Ég segi hiklaust - við höfum öll tök á að komast yfir allt lesefni sem okkur er sett fyrir.  Þetta er algjörlega heimatilbúinn vandi.  Við erum að fara allt of ómarkvisst í gegnum bókina og missum tímann frá okkur.

Lausn:

Settu þér skýr þekkingarmarkmið með lestrinum.
Forlestu efnið og kynntu þér aðalatriði.
Þegar þú lendir á orðum og hugtökum sem þú þekkir ekki - ekki stoppa - merktu við þetta vandamál - orðið eða línuna - og haltu lestrinum áfram. Kláraðu kaflann og skoðaðu svo vandamálin í framhaldi en nú af meiri þekkingu og kunnáttu.
NÝTT – Hvernig á að nota iMindMap í námi?
NÝTT!! - Hvernig á að nota iMindMap í námi?

Á námskeiðinu lærir nemandi:
    * Hvernig og af hverju hugarkortin hjálpa
    * Af hverju iMindMap forritið hjálpar
    * Hvaða reglur þarf að hafa í huga
    * Hvernig á að finna lykilorð og lykilatriði
    * Af hverju þú átt að forlesa og eftirlesa
    * Hvernig þú nærða að glósa markvissar með iMindMap
    * Hvernig á að leita uppi lykilspurningar
    * Af hverju það er nauðsynlegt að rifja upp
    * Hvernig þú getur rifjað upp og ýtt við huganum

Næstu iMindMap námskeið eru:
- Reykjavik - 3. september
- Reykjavík - 10. september
- Höfn - 17. september
- Egilsstaðir - 24. september
- Sauðárkrókur - 1. október
Skráning á www.h.is/imindmap
Náðu þér í kynningareintak af iMindMap forritinu með því að smella á iMindMap -forritið fylgir frítt með námskeiði.
Við ábyrgjumst árangurinn















Kynntu þér ábyrgðina okkar á hraðlestrarnámskeiðunum. 
Við leggjum allt okkar í að þér gangi vel - ekki bara í dag - ekki bara á morgun - ekki bara á meðan að á námskeiði stendur - heldur alla ævi - því þú átt það skilið.

KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ HÉR
HAFÐU SAMBAND
Hraðlestrarskólinn
SÍMI: 773 - 0100
NETFANG: jovvi@h.is
SKYPE: jonvigfus
FACEBOOK:
www.facebook.com/hradlestrarskolinn
~ VERTU VINUR

 ~ Hrökkva eða Stökkva á Facebook ~
Vertu vinur á Facebook því af og til ef fólk dettur út á síðustu stundu mun ég skjóta ~ Hrökkva eða Stökkva ~ tilboði inn á Facebook að morgni á námskeiðadags. Vertu vinur núna...
www.facebook.com/hradlestrarskolinn

 ~ Hrökkva eða Stökkva á SMS ~
Viltu fá tilboðið í SMS í símann? - skjóttu þá GSM númeri þínu á netfangið – mailto:frettabref@h.is